Leita í fréttum mbl.is

Pressublogg

Byrjum þetta á hinu ó svo klassíska jæjanu. Við erum á heimleið núna í fjörðinn fegursta og eigum að landa á fimmtudaginn. Með kjaftfullan bát af brakandi ferskum þjóðhátiðarmakríl er veiddist við eyjuna grænu.
Skipscelebbið varð ekki við áskorun minni að gerast gestabloggari og fær hann mínus í kladdann fyrir það. Hann ætlar sér að bæta upp fyrir það seinna en þangað til verð ég að halda þessu gangandi. Reyndar held ég að fjölmiðlamaðurinn sé hræddur við að drita nokkrum orðum á blað enda í stóra skó að fylla :) En nóg um það.
Helst er í fréttum að tveir áttu afmæli í túrnum það voru unglingarnir Kristinn Helgi aka Hokkí Melló og Ársæll Hersteinn aka Sæli sveitti :) Við óskum þeim til hamingju með daginn um daginn. Ársæll hélt veislu fyrir bátsmannsvaktina og var skálað í súkkulaði prótensjeikum á frívaktinni. Kunnum við honum bestu þakkir fyrir sjeikana.
Talandi um afmælisveislur þá hélt undirritaður uppá 30 ára afmælisveisluna sína um daginn. Heppnaðist hún vel en og skáluðu menn í kapavíni og milla mjöð áður en haldið var á kaffihúsið. Þar hitti ég fyrir nokkra vel valda veraldarvini og þá kom sér vel bókin góða sem hafði fengið lánaða frá Tóta. Spanish for dummies. Gat ég þá vippað út nokkrum vel völdum frösum sem féllu í mjög góðan jarðveg hjá spænskum senjórítum sem fegra Eskifjarðarbæ þessa dagana. Minnstu munaði þó að það þyrfti að hætta við fyrirhugað partý þar sem að bylgjuvaktin var mjög óliðleg að færa bátinn svo ég gæti tekið á móti gestum og gangandi.
Þórarinn er  mjög alþjóðlegur eins og alþjóð veit og stefnir hann á að kynbæta íslensku þjóðina eins og hann kallar það á næstu mánuðum. Ég er með myndband sem ég vill tileinka honum en það er með hljómsveitinni Toto sem allir á bylgjuvaktinni ættu að kannast vel við. 
------http://www.youtube.com/watch?v=37ZaSINRDGM------ 
 
 
Þreifingar eru hafnar fyrir næstu ferð starfsmannafélagsins.  Helsinki kom hressilega á óvart en í næstu ferð er kominn tími til að taka þetta "to the next level" og er Amsterdam efst á lista. Vegna fjármagnsleysis er búið að koma fram skipulagsprógram sem mun sjá til þess að allir geti vel við unað. Þeir úr áhöfninni sem eiga hjól/fellihýsi eða tjaldvagn verður komið haganlega fyrir fyrir utan Amsterdam á grasbakka við ánna Amstel sem rennur í gegnum borgina. Hinir einhleypu verða á gistiheimili í rauða hverfinu og restin á hóteli við flugvöllinn. Einnig hefur það komið til tals að láta þá sem eru þeim forrréttindum haldnir að eiga heimili á hjólum að þeir skulu ferðast á meginlandið með skipi. 
Í næstu færslu ætla ég að breyta aðeins til og þá mun ég kynna til leiks nýjan dagskrálið en það er uppskriftarhorn Daníels. Fyrsti rétturinn sem hann mun sýna ykkur lesendum er "Fiski-fullnægingin" en hún er borin fram með karftöflumús. Ég get fullyrt það að það er varla hægt að fá betri fisk.:)
 
Svo minnum við á Facebook síðuna okkar þar sem hægt er að fylgjast með okkur í rauntíma.
 
Þar til næst.
 
Allinn. 
 
 
 
 
 
 
 
 
   

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband