Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, október 2007

Á leiðinni í land!

Jæja þá erum við búnir með kvótann í norsku lögsugunni og erum lagðir af stað í heimahöfn, og er áætlað að vera þar á þriðjudagskvöldið 30 Okt.  Erum með 472 tonn af frystu og eitthvað smá í grút.  Og er þar með lokið síldveiðum úr íslensk-norska síldarstofninum á þessu herrans ári, og eru menn bara nokkuð glaðir með það :)  enda er búið að vera leiðinda veður þennan seinasta túr, bara endalausar brælur.  Og mannskapurinn orðinn spenntur að koma heim, en skipið hefur ekki komið í heimahöfn síðan í byrjun Sept, annars er lítið að frétta erum bara að þrífa allt hátt og lágt og gera fínt.  Sendum við ástar og saknaðar kveðju í land til þeirra sem vilja slíkar kveðjur ;)

Kv.Strákarnir á bátsmannsvaktinni 


Já fínt, já sæll, já fínt , já sæll

Góðan daginn,

Nú gengur allt ljómandi hjá okkur, fín veiði hífðum í fyrradag tæp 300 tonn og í nótt 200 tonn, þannig að vinnslan er komin á gott skrið eftir brælu og veiðileysi síðustu daga. Núna í þessum skrifuðum orðum erum við búnir að frysta um 180 tonn, þannig að vel gengur á frystilestina. Ef allt gengur samkvæmt áætlun þá ættum við að vera búnir að fylla um helgina.

Síðustu fréttir herma að áætlað er að landa á Eskifirði eftir þennan túr, mönnum til mikililla ánægju. Sumir eru búnir að vera lengi að heiman og hlakka til að koma heim á klakann. 

 

Látum fylgja með nokkrar gamlar myndir. 

 

 

 

 

Ein gömul frá Hólmaborginni 

 

 


Halli og Stjáni í góðum gír.

 

 

 

 

Runólfur Ómar að fíflast. 


Smá fréttir

Jæja við erum farnir fá Norge í bili. Leið okkar lá í smuguna, þar sem við nú erum. Fengum einhvern skítaslatta  í morgun og erum að slá úr seinustu tækjunum ákkurat í þessum töluðu. Það er einhver helv.... bræla sem herjar á okkur núna en vonandi fer það að lagast svo við getum kastað. Annars er bara lítið að frétta af mannskapnum, við sendum bara kveðju til allra sem kveðju vilja fá.

Þangað til næst

Strákarnir á Allanum 

 

 


Næturfréttir

Jæja þá fer nú vonandi að sjást fyrir endan á þessum blessaða túr það eru komnir rúmlega 18000 kassar niður í lest og er blússandi gangur í vinnslunni. Við hífðum ca.140 ton í dag og vonandi dugar það til að fylla bátinn Enn annars byður áhöfninn á Alla Jónss bara að heilsa öllum sem þeir þekkja . ps speki dagsins fellur því miður niður í dag vegna tæknilegra vandamála 

Miðnætur fréttir

Þá er komið að miðnætur fréttum.

Við vorum að hífa góð 200 tonn af ekki svo stórri síld, en hún verður látin duga þó lítil sé.  Annað af okkur er það að frétta að við erum komnir með ca 15ooo kassa í lest og fer þá að sjást fyrir endann á þessu ef Guð og lukka leyfir.  Hvað miðin varða er talsvert að sjá af síld, eru allra þjóða kvikindi s.s Íslendingar, Rússar,Hollendingar, Grænlendingar og svo auðvita hinir yndislegu gestgjafar Norðmenn. 

Nú ætlum við Dósi dós að koma með speki dagsins. vissu þið það að Adolf Hitler var ein eistungur!

Og svona til ykkar sem kíkið á okkur hér á þessa mjög svo fínu síðu viljum við þakka ykkur svo mikið fyrir. 


Kvöldfréttir

Núna fer að líða á seinni n í þessum túr hjá okkur komnir með um 340 tonn í lest og allir nemar orðnir rauðir að sjálfsögðu, sem er mjög gott því það er bræluspá framundan og fínt að hafa nóg hráefni til að vinna meðan hún gengur yfir. 

meira seinna

kv

Bátsmannsvaktin 

 

Halli

 

Pósað fyrir myndavélina. 

 

feðgarnir

Eins gott að fylgjast með stráksa. 

 

baader

 

Alltaf að brasa. 


Nú verða sagðar smáfréttir

Góðan og blessaðan daginn við hífuðum ca 120 ton í gærkveldi af stóri og fallegri eðal síld sem fer stærsti hlutin af í heilfrosið en rest í flapsa erum komnir með um 8000 kassa og gengur bara allt eins og í lygasögu ,en annars bara ástar og saknaðar kv til allra sem þær vilja kv strákarnir á stýrimannsvaktinni

Smávegis fréttir

Jájá eitthvað lítið er að frétta af okkur núna erum vestur af norður noregi í skítabrælu hífðum í morgun alltof lítið, en vinnslan gengur sinn vanagang fyrir því. Erum að flaka og heilfrysta ágætis síld og alveg ágætis gangur hjá okkur. Kommnir með rúmlega 5000 kassa í lest eða ca 125 tonn.

 

Baaderinn

Baadermaðurinn einbeittur að fylgjast með nýtingunni. 

 

Halli

 Halli Fribb að bíða eftir kössum í lestinni

 

Matsmaðurinn

 Matsmaðurinn í Tetris

 

Íbsen

 Þú rökræðir ekki við mann á englaryki

 

Danni og Gummi

Allt á fullu í pökkuninni 


..


.


Næsta síða »

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband