Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, desember 2009

Seinasti túrinn á árinu.

Ok ok ok við byrjum þetta á jæjinu.

 

Jæja við erum núna staddir við strendur norður Noregs í seinasta túrnum á árinu. Við erum það norðarlega að við erum núna nær Rússlandi en Íslandi. Veiðin hefur gengið ágætlega og erum við komnir með 350 tonn í frystinn.

      ***Áhöfnin vill senda kæra kveðju til Daða og Söru og óskum við þeim til hamingju með nýjustu viðbótina  í fjölskylduna. ***

 

En þá er komið að slúðrinu. Uppgjafar Kongóbúinn Ingi Ragnarson hefur verið lækkaður í tign og er hann núna orðinn óbreyttur háseti. Það hefur samt ekki áhrif á launin hans þar sem að hann er núna með næst hæsta hlutinn hér um borð og líkar það vel.

          Í tilefni af því þá hefur hann ákveðið að kaupa sér myndavél af dýrustu sort. Er hann núna búinn að slá Pétri við og telst hann núna yfirljósmyndari Allans. Næstu fyrirhuguðu myndatökur hans er erótískt  dagatal með áhafnameðlimum. 

       Upp hafa komið nokkrar hugmyndi af myndum og má þá helst nefna að Sölva allsberan á hestbaki og Daníel kokk löðrandi í sósu.

Haraldur Friðbergsson er búinn að setja nýjar umgengisreglur í lestinni og tók hann Gáttaþef (Aka Sigurjón) í nýliðafræðslu og lét hann vita að  það væri ekki æskilegt að menn væru að traðka á myndinni af skipinu.

Miklar deilur hafa sprottið upp nýlega vegna holdafars tveggja áhafnarmeðlima. Það fer nefnilega tvennum sögum um hvor sé með hærri fituprósentu.

      Áhöfninni hefur borist liðstyrkur frá Keflavík og er það enginn annar en liðhlaupi úr frönsku útlendingahersveitinni skæruliðinn Ingvar. Túrinn byrjaði ekki vel hjá honum en hann fékk tannrótarbólgu og er hann núna glettilega líkur Harold úr nágrönnum.

Talandi um Keflavík þá sást nýlega til hóp myndalegra manna á flugvellinum með fullar töskur en tóm veski. Er talið að þeir hafi sett Íslands og norðurlandamet í pokaburði enda búnir að vera duglegir í fjósinu fyrir ferðina. (nema Halli stóri hann þurfti ekkert á því að halda.)

 Svo virðist sem að Sölvi og Jóhann Ben séu algerlega hættir að hugsa um útlitið á sér og eru þeir orðnir það skeggjaðir að þeir myndu sóma sér vel í gengi með Osama Bin Laden og félögum.

 p1010443.jpg

 Þetta verður ekki lengra að sinni en núna bíða menn milli vonar og ótta að við komumst í land áður en að fyrirhugað jólahlaðborð fer fram. 

Ef að þetta verður okkar síðasta  færsla viljum við óska ykkur lesendum góðum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

 

Bestu kveðjur strákarnir á Allanum.

 

 


Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband