Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, júní 2011

Séð og heyrt.

Jæja við erum núna að sigla suður af Hornafirði að elta makrílinn uppi eins og feitur krakki hleypur á eftir ísbílnum.
Komnir með circa 180 tonn í frystinn og allt gengur eins og í lygasögu.

Þessa stundina erum við með 2 aukafarþega og þá er ég ekki að tala um vélstjórana. Það er Ingibergur eftirlitsmaður og Benni Markmaður.

Skipscelebið er einnig mættur um borð og þá má búast við því að félagar mínir hjá DV fari nú að lesa þetta blogg. Strákar þið megið nú endilega kvitta fyrir heimsóknina. 

Celebið ætlar einmitt að taka að sér gestablogg og þarf hannað girða sig verulega í síðbrók enda var það ekki uppá marga fiska hjá honum seinast. Hann kenndi reyndar tæknilegum erfiðleikum um en það er engin afsökun og fær hann núna tækifæri til að fá uppreisn æru.
 
 

Daníel L. var með grillpartý fyrir brottför um daginn og voru þar mættire helstu folarnir af skipinu þeir Heiðar, Sölvi, Pétur og Þórhallur kenndur við Frey. Slátruðu þeir nokkrum beljum og meððíí.

Fleiri kunnugleg andlit eru um borð og má þar nefna Magga landafræðiprófessor sem veit hæð á öllum hólum og hæðum vestan við miðlínu.

Hreggviður Fribb er einnig á svæðinu en bróðir hans Haraldur er hvergi sjánlegur, sennilega er hann í nágrenni við sundlaug Eskifjarðar.

Yngri Jarlinn af Músalæk, sem er fyrir þá sem ekki vita næst stærsta einkajörð á Íslandi á afmæli á föstudaginn. Býst Daði við að þurfa að stoppa vinnsluna og ræsa á frívaktir til að allir geti tekið þátt í gleðinni. Jarlinn verður einmitt með óvænt atriði um kvöldmataleytið á föstudaginn.

Læt þetta nægja frá mér í bili..

Helgi þú ert næstur :)


kv. Allinn.

Fyrsti túr eftir sjómannadag.

Bada bing bada búmm.

 Hausaveiðararnir á Aðalsteini eru núna staddir eins og svo oft áður nálægt frændum okkar Færeyjingum og erum við í þessum töluðu orðum að búa til gæðavöru sem samanstendur af síld og makríl. Bleyðan hefur verið að gefa af sér og fiskast vel í trollið. Aflatölur standa eitthvað nálægt 300 tonnum af frosnum afurðum.

Sjómannadeginum er nýaflokið og létum við að sjálfsögðu okkur ekki vanta í siglinguna þetta árið enda væri þetta varla sigling án flaggskipsins. Skipið kom nýmálað og flott í fjörðinn nokkrum klukkustundum áður en haldið var. Var hann í makeover mánuði á Akureyri og hefur hann aldrei litið betur út.

Talandi um makeover þá skartaði okkar elskulegi skipstjóri svakalegri múnderingu í siglingunni en þetta var forlát leðurskyrta saumuð úr sauðnautaleðri frá Síberíu. Skyrta þessi vakti mikla lukku hjá undirrituðum og fær Daði fjöður í hattinn fyrir hana. :)

Baldur (M) Einarsson gerði gott mót þessa helgi og sett hann heimsmet í baujukasti við gríðarleg fagnaðarlæti áhorfenda. Haraldi Harðar gekk hinsvegar ekki jafnvel og þurfti hann að láta í nammipokann fyrir Reyðarfjarðarrakettunni í þetta skipti.

Að gefnu tilefni þá vil ég láta þá heyra það sem kepptu fyrir hönd áhafnarinnar í kappróðrinum þetta árið og þurfa þeir að taka sig í alvarlega naflaskoðun eftir afhroð síðustu keppni. Töpuðu þeir í enn eitt skiptið fyrir ellilífeyrirsöldungunum frá Jóni Kjartanssyni enn eitt árið en ekkert mannlegt afl virðist geta stöðvað þá. Í fhópíþróttagreinum ganga menn kaupum og sölum og erum við búnir að taka eftir því að það þarf eitthvað að hrista uppí byrjunarliðinu. Erum við þessvegna að undirbúa transfer á þeirra helsta manni Óðni Leifssyni og er hann með okkur núna um borð og er umboðsmaður okkar Sævar hinn Rauði að reyna allt hvað hann getur til að fá hann annaðhvort með okkur í lið næsta ár eða gera sér upp einhversskonar meiðsli svo hann geti ekki tekið þátt á næsta ári.

Árshátið Eskju tókst vel upp heyrði ég og fór Freyr Eyjólfsson víst á kostum sem veislustjóri en senuþjófur kvöldsins var Snorri á mel sem átti góða innkomu og hvatti fólk til dáða í drykkju.

Pappakassi helgarinnar var Pétur Kristinnson sem ákvað það að í stað þess að skella sér á dansleik þá fannst honum það vera betri hugmynd að loka sig inní sumarbúðstað og spila fjögurra manna lúdó. hann heiðraði Eskfirðinga reyndar með nærveru sinni á sunnudeginum og tókst honum að halda andliti með þeirri heimsókn.

Nýr baadermaður er í starfskynningu hjá okkur og er það stáltillinn Einar. Með honum á vakt er annar maður úr stáli betur þekktur sem stálmúsin. Runólfur Ómar kemur mjög ferskur úr fríinu og reytir af sér brandarana svo mikið að Brandara-Baldur er farinn að taka niður punkta.

Talandi um brandara þá veit ég ekki hvort ég hef sagt ykkur frá því að ég hef í hug að gefa út 2 bækur í nánustu framtíð. Önnur er "Brandarabók Baldurs" og hef ég verið að safna í hana frá því ég byrjaði hér um borð. Hin er hin víðfræga  "Flækju-bók" sem allir sjómenn hafa heyrt um en enginn lesið. Er ég þessa stundina ú upplýsingasöfnum um hnúta og óhnúta og tek ég gjarnan við ráðum heldri og reyndari manna í þessum málum. Reyndar hefur það komið til tals að það lesi enginn bækur í dag og þá er einnig spurning um að gefa út þessi öndvegisrit á stafrænu formi sem iphone application.

Ársæll Hersteinn skartar nýrri hárgreiðslu þessa dagana og fékk hann innblástur frá Essunum þrem (Sölvi, Stjáni og Sæsi) með útfærslu sína á nýja lubbanum. 

Þó svo að sumarið sé ekki komið á Íslandi þá er vor í pungnum á Færeyjum því að menn fara varla útá dekk án þess að koma bruna brúnir og sveittir inn aftur. Þetta er eitthvað sem við Íslendingar ættum að taka til fyrirmyndar hjá frænum okkar og fara að byrja sumarið almennilega áður en að tjald, felli og hjólhýsin fara að ryðga föst í skúrunum.

Maður vaktarinnar so far. Allavegna sá sem ég fæ mestan innblástur að skrifa um þessa dagana er klárlega Baldur. Ég tók eftir nokkru athyglisverðu um þann ágæta mann um daginn. þannig er mál með vexti að Baldur leysir mig af í lestinni á hverri vakt og núna seinast þegar að ég var að klæða mig úr gallanum þá sá ég vettlingana hans. Þetta eru nú ósköp venjulegir vettlingar fyrir utan það vegna stærðar þeirra gætu þeir notast sem júgur hulstur ef þannig lægi við. Baldur merkir vettlingana sína "B.E". Fyrir þá sem ekki vita þá heitir hann hvorki meira né minna en þremur nöfnum og fannst mér þetta einkennilegt að hann skyldi bara nota tvo stafi til að merkja þá enda ritpláss ekki af skornum skammti. Fór ég í smá rannsóknarvinnu og þar sem að ég er ekki bara með eindæmum myndarlegur heldur líka áhugasálfræðingur komst ég að því að hann er haldinn svokallaðri "Nomatophobia"  en það er sjúklegur og órrökstuddu hræðsla við nöfn. Ekki nóg með það að hann sé með þessa fóbíu þá er hann líka haldinn svokallaðri "Milli nafna maníu" hef ég gríðarlegar áhyggjur af þessu ástandi og biðla ég núna til allra þeirra sem "vettlingi" geta valdið að hjálpa mér í átaki þessu. Hugmyndin er að hafa átakið nafnlaust enda vil ég ekki fyrir mitt litla líf styggja þennan tveggja metra mann.

 Sjoppustjórnin er ekki að gera góða hluti þessa dagana og hef ég verið að fá kvartanir úr öllum áttum vegna lélegs úrvals. Ég er enþá að bíða eftir starfsmannafélags visa kortinu enda er ég nýbúinn að kaupa mér íbúð og vantar hitt og þetta í búið. 

Búið er að setja upp tippkeppni fyrir evrópumót U-21 landsliðsins í fótbolta og þykir Daníel Lecki sigurstranglegastur enda sér hann um að fylla inn úrslit og er til alls líklegur í þeim efnum. Daníel sigraði einmitt dorgveiðikeppni sjómannadagsins með yfirburðum þriðja árið í röð enda veiðimaður mikill. Hann er einmitt nýlega kominn með skotleyfi og má búast við rýrnun á rjúpna og gæsastofninum á Íslandi.

Ný tækni er að ryðja sér rúm en það er snjallsímatæknin. Ingi er núna búinn að tengja símann sinn við myndavél sem fylgist með hvort að það vanti fisk í tvö kör á neðsta millidekki. Sparar þetta mönnum mörg fótsporin og næsta skref hjá honum er að fá myndavél tengda við Runólf og Einar svo hann geti fylgst með þeim í rauntíma. 

Þangað til næst.

 

Aðalsteinn Jónsson SU 11 

 


Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband