Leita í fréttum mbl.is

Fiskiorgía.

Jææææææjjaaaaaaaaaaa. Síldarbanarnir á AJSU Ellefu eru mættir á miðin brakandi ferskir eftir seinasta túr þar sem að Tandrabergsstrákarnir tóku á móti smekkfullu skipi af eðal flakaðri síld. Við erum núna í þessum skrifuðu orðum að eltast við síldina norður eftir en það er komin bullandi gredda í hana og flykkist hún norður til að eðla sig. Stefnum við að verða komnir á miðin um hádegi á morgunn.

Stjórnandi leitarinnar er aflakóngurinn Ómar Sig en hann kemur brúnn og sætur eftir aðra sjóferð en þar var hann að vísu ekki skipstjóri, þess heldur var hann farþegi á skemmtiferðaskipi í karabíska hafinu eða kyrrahafi man það ekki alveg það var allavega minni bræla þar heldur en í heimahafinu er kennt er við borgina Atlantis sem sökk eins og frægt er. Mega síldarnar nú vara sig því eitt er víst að þær sleppa ekki úr aflaklónni á Ómari.

Einn laumufarþegi fannst um borð og þá er ég ekki að tala um Binna vél, Erum við núna með Japana sem verður með gæðastjórnun á roðlausum síldarflökum sem við seljum til austurlanda. Undirritaður er mikill áhugamaður um japanska menningu og siði, þá sér í lagi samúræja og sverð og hygg ég á að spyrja hann spjörunum úr. Hinsvegar komi í ljós að hann sé A: Ekki vel að sér í fræðum þessum eða B: Ekki vel máli farinn í enskri tungu, neyiðst ég til að taka hann í hina víðfrægu "silent treatment" sem fyrirmyndin mín silfurrefurinn Fribbster hefur fullkomnað í gegnum árin mönnum til mikillar á og óánægju.

Svo bregðast krosstré sem önnur því að skákséníið Agnar Árna tapaði sinni fyrstu skák hér um borð, Einvígið milli hans og Heiðars hefur verið kallað einvígi aldarinnar og þykir minna mikið á Fisher - Spasski í höfða um árið.

Skotveiði félagið "Bloodgroup" hefur tekið saman rjúpnaveiðitölur þetta árið og er Ingi Ragnarsson skarpasta skyttan og leiðir töfluna þetta árið. Mikil ágangur rjúpna hefur einmitt sést á næststærstu einkajörð á Íslandi, Músalæk við Vöðlavíkurheiði. Náttúruvernadarstofnum telur að  40-45% af austfirska stofninum sé með lögheimili þar. Hægt er að sækja um veiðiheimild á þessari gjöfullu landspildu og er áhugasömum bent á netfangið hjá Guðna mussi2@simnet.is.

 Sigurður Á eða títt nefndur Baddi var 1. stýrimaður í seinasta túr og fær hann margar fjaðrir í hattinn fyrir "do it yourself" vinnuviðmót sem hann sýndi. Þetta er eitthvað sem starfsbræður hans ættu kannski að taka til fyrirmyndar enda snýtti hann þeim all verulega. 

Það styttist í jólin og er líklegt að við munum koma eitthvað saman, allavega skemmtilega fólkið sem er í starfsmannafélaginu, fýlufélagið er ekki líklegt til afreka. Þar munum við sennilega borða okkur sadda, drekka óheyralega mikinn mjöð hlægja og hafa gaman af. 

Ég veit ekki hverju ég meira að bulla í ykkur lesendum góðum sem virðist bara fjölga þannig að eitthvað hlýtur maður að vera gera rétt. Þið eruð hinsvegar greinilega hrædd við að tjá ykkur og er ég eiginlega búinn að gleyma því að það sé hægt að tjá sig hérna líka og alveg hættur að kippa mér upp við það þó það sé enginn að kommenta.

 Það er fátt um fína drætti í myndum þannig að ég tók saman nokkrar gamlar og fór yfir nokkra nýliðna atburði.

 

saga

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband