Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Gimme sexý

Góðan daginn, kvöldið eða hvaða tími sem er.

Fríðasta áhöfn flotans er núna stödd við Færeyjar að klára seinasta kolmunatúrinn á þessu ári. Eftir að túr líkur munum við svo keyra bátnum í land þar sem vel valdir iðnaðarmenn og smurapar munu sinna viðhaldi og öðrum ákallandi verkefnum.

Veiði hefur verið góð á miðunum og erum við þessa stundina heim á leið í fjörðinn fagra þar sem draumar rætast á degi hverjum. Helsta skúbbið þessa stundina er það að Sævar hinn rauði er búinn að kaupa miða í forsölu á átrúnaðargoðið sitt Haffa Haff sem mun leika fyrir dansi í Valhöll á Eskifirði næsta föstudag, búast má við að föstudagurinn langi verði sérstaklega langur fyrir hann Sæsa enda er hann þegar farinn að telja niður og má heyra hann raula "Gimme sexy" öllum stundum.

Ný róðrarvél hefur verið tekin í gagnið í sjúkra og líkamsrækarsalnum eða fjósinu eins og það er stundum kallað. Vél þessi á að tryggja okkur góðan árangur í kappróðrarkeppninni um sjómannadagshelgina. Þori ég núna að fullyrða að Aðalsteinn Jónsson mun hrósa sigri og koma með bikarinn um borð. Daníel kokkur er þegar farinn að hliðra til í borðsalnum til að gera ráð fyrir dollunni.

Annar undirbúningur er hafinn fyrir sjómannadaginn og er það ölið sem við höfum pantað árlega fyrir þessa stærstu helgi Eskifjarðar. Undirritaður er í sjoppustjórn og mun ég sjá til þess að "Kalda-klúðrið" muni ekki endurtaka sig. Vill ég minna þá á sem ætla að fá bjór að hafa samband við Heiðar, Daníel eða Ómar og leggja inn pöntun, einnig er  blað í borðsalnum ef menn eiga leið hjá.

Menn finna sér nýtt áhugamál í túr hverjum og í þetta sinn er það skákin sem hefur tekið öll völd, tefla menn nú net-skákir innbyrðis. **Ómar þú hefur ekki enn tekið áskorunn minni, hvítur á leik**

Mikill ballspenningur er í mönnum og er partý hjá Davíð (hann býr í skammadal 1, vinstra megin) þar munu Davíð og Kiddi Mellon taka á móti gestum og gangandi :)

 

Þangað til næst.

 

Kv. Allinn 

  

 


Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband