Miðvikudagur, 11. mars 2009
Er alveg orginal
Jæja kæru aðdáendur nær og fjær ég veit að þið eruð búin að bíða í öndvegi eftir því að ég komi með eitthvað ferkst á skjáinn. Dömur mínar og herrar biðin er á enda.
Erum við nú lagðir á stað heim í Mekkuna. Fyrir þá sem ekki vita er það staður á Austurlandi sem að múslímar biðja í áttina til. Þar iðar allt af mannlífi og fagrar meyjar ganga um og sólin skín allan ársins hring. Pétri líkar svo vel við Eskifjörð að hann ákvað að fresta heimför sinni til að getað eytt helginni í sumarhúsunum við Mjóeyravita.
Pétur hefur sett sig í samband við adalsteinnjonson.blog.is og hefur hann verið ráðinn sem formaður greiningardeildar síðunnar og mun hann á næstu dögum koma með sérstakt kreppuhorn þar sem hann ráðleggur lesendum hvernig hægt er að gera mikið fyrir lítið.
Þar verður hinsvegar ekki stoppað lengi bara rétt til að landa 410 tonnum af frosnum kolmuna og 850 af maukuðum kolmuna. Einnig er líklegt að Stefán hinn langi þurfi að líta yfir trollið.
Vonir drengjanna um gylltan Guiness og írskar íturvaxnar snótir fóru fyrir lítið þegar að kallið kom frá landi og stefnan sett á Ísland. Verst þykir manni nú að hafa mist af St. Patricks day sem að er einn mesti drykkjudagur Írlendinga. En sneiðin kennir naktri konu að stynja og er sennilega opið á Cosy á morgunn.
Það helsta af stýrimanns vaktinni er það að drengirnir eru alveg dolfallnir yfir einstökum hæfileikum mínum í dósakörfubolta. Ég hef nú sett heimsmet í þessari íþróttagrein og er nú búinn að hitta 8 dósum í röð yfir vaskinn og ofan í ruslið ruslið. Baldur reyndi meira að segja að komast í veg fyrir skotið en meira að segja hafði þessi genabreytti risi ekki roð þessi ógnarskot.
Úrslitin eru ekki enn ljós í tippakeppninni en Kiddi Melroy og Grétar pakkari hafa verið staðnir að svindli. Eru þeir grunaðir að hafa reynt að hagræða úrslitum sér í hag. Þeim hefur verið vikið úr keppni meðan að rannsókn stendur yfir.
Ekkert svar hefur enn komið frá neinum af þeim 3 sjoppubankastjórum um nammi ástandið hér um borð.adalsteinnjonson.blog.is hefur reynt að hafa samband við Þórhall starfandi stjórnarformann en án árangurs. Þórhallur Freyr kemur um borð í næsta túr og kannski að hann geti varpað einhverju ljósi á málið. en er á huldu hver þriðji starfsmaður stjórnar eðal group er en hans er ákaft leita kannski að hann hafi fengið sér blund.??? Meira um það síðar.
Fleiri eru að koma um borð en þar má meðal annars nefna gagnkynhneigða lífsförunaut Halla Fribb sjálfur Runólfur "Stálmús" Jónsson. Haraldur hefur nú brosað allan hringinn því að hann fær mikil fráhvarfseinkenni ef hann er of lengi frá Runólfi.
Að persónulegum nótum er sjálfstraust mitt í molum eftir að mér var tilkynnt það að af Halla F. og Agga að ég kæmi ekki til greina sem tilvonandi tengdasonur. Ég sem var búinn að sjá þetta fyrir mér að ég myndi flytja inn til Agga þar sem að við myndum eyða kvöldunum yfir taflborðinu. Ég er núna byrjaður í herferð til að sanna ágæti mitt og hef ég á hyggju að færa Agnari ríflegan heimamund í landlegunni.
Þá er komið af hinni hliðinni og núna er komið að eina West-Ham aðdáenda suðu-múla sýslu. Haraldi Harðar eða Halla stóra eins og við þekkjum hann.
Við byrjum á byrjuninni og segðu mér Halli hvar ert þú fæddur?
" Reykjavík City. "
Er það satt að þú hafir einu sinni verið kallaður í yfirheyrslu vegna stórsmygls á pulsum þegar að þú varst nýkominn til Eskifjarðar?
" já það er rétt" var fundinn sekur og afplánaði minn dóm fyrir
" Hvað finnst þér um það að það er kominn annar maður hér um borð sem er yfir 2 metrar?"
"Ég er ósáttur við það"fyn fyrir smá minnimátakennd
"Hvað möguleika á ég að verða tengdasonur Agga?"
"Ég myndi segja litla. fyrr frysi í helv....."
"Hvenær er von á næsta singstar partý og finnst þér að Davíð ætti að leggja sönginn fyrir sig að fullri alvöru?"
"Fyrr en seinna og Nei og þá kannski dúett með Árna Johnsen eða Danna orginal"
"Nú ert þú búinn að eiga marga Wolksvagen, hvað ertu búinn að eiga marga og hefuru hugsað þér að fá þér bjöllu?" 10 stykki á 10 árum. og já ég hef oft dreymt um að eignast bjöllu?"
"Hvaða áhafnarmeðilm myndirðu nota sem beitu ef þú þyrftir?"
" Lolla það er svo seigt og stint í honum"
"Eitthvað að lokum?"
"Lifi West-Ham! og söngurinn lengir lífið"
segjum þetta gott bili við þökkum Halla fyrir þetta innlegg.
Hílsen Nær og fjær.
Yfir og út.
Nýjustu færslur
- 3.6.2014 Olíufurstinn
- 16.7.2013 Risa búlkarar, fljótandi frystihús og allt þar á milli.
- 20.11.2012 Ingi ég veit að þetta varst þú, Davíð þú ert líka grunaður...
- 29.7.2012 M fyrir Makríl
- 29.7.2012 Orðið á göngunum
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2014
- Júlí 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Apríl 2007
Tenglar
Önnur Skip
Heimasíður annarra skipa í flotanum.
- Jón Kjartansson SU Faðirinn
- Hákon EA
- Margrét EA
- Christian í Grótinum
- Snorri Sturluson VE
- Málmey SK
- Kleifaberg ÓF
- Guðmundur í Nesi RE
- Börkur NK
- Jón Kjartansson SU
- Hoffell SU
- Nordborg
- Beitir NK
- Bjarni Ólafsson AK
- Álsey VE
- Guðmundur VE
- Huginn VE
- Grétar skipsjóri á jóni kjartans
- faxi
- Krossey
- Brimnes
- Nýja Guðmundar síðan
- Ásgrímur Haldórsson SF
Athugasemdir
Sakvæmt heimildum greiningardeildar Aðalsteins hittir þú ekki nema 3 skotum og tellst þetta því sem skjalafals og föðurlandssvik á aðalsteini og er refsingin 20 armbeyjur í kraftlyftingarfélagi Aðalsteins. Tekið er tillit til líkamslegs ástands þíns og þykir því hæfileg refsing einungis 2 armbeyjur og skilorð allt að 2 túrar. Afplánun dómsins hefst þegar í stað
Greiningardeild Aðalsteins (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 13:11
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.