Færsluflokkur: Bloggar
Miðvikudagur, 10. nóvember 2010
I´ll be back!
PUUUUUUUUUUJJJJJJJÆÆÆÆÆÆÆÆJJJJAAAA!............
Við erum mættir. Aftur. Við komum alltaf aftur. Eins og Marteinn Mosdal og fuglinn Felix erum við risnir úr öskunni og sjaldnar verið í betra formi.
Við ættum að detta á miðin við Noreg og samkvæmt bleyðufréttum.is er fín veiði og vonumst við til þess að sýna flotanum hvernig eigi að gera þetta. :)
Fréttir af áhöfninni eru svo hljóðandi:
Daði og Ingvar eru dottnir í þunglyndi eftir slaka frammistöðu Tottenham í gær.
Grétar og Heiðar eru að fara að stofna www.formspring.com síðu þar sem að leynilegir aðdáendur þeirra geta spurt þá spjörunum úr.
Tóti er komin á glænýjan tussutrylli á 4 hjólum.
Sæsi rauði heitir ekki lengur Sæsi rauði heldur Sæsi skalli eftir nýja klippingu.
Stefán Kongo þykir nokkuð lunkinn við bakstur og kökuskreytingar.
-------------------
Meira seinna í túrnum ... stay tuned!
Þar til þá.
Kv. Allinn.
---- Þá er komið að hinni hliðinni af kokknum geðþekka honum Daníel.--------
Fullt nafn:Daneil welski
Bestir í ensku? Liverpool, þarftu að spyrja
uppáhaldsmatur? Skata
Hvernig ertu í honum? Haann er barasofandi úta´sjó
Hver er fallegastur um borð? No comment
Hver er mesti matargikkurinn? Halli stóri
Af hverju ertu alltaf tuðandi þegar að ég spyr um bláa einnota hanska? Það er mjög erfitt að ná í þetta sjálfur.
Hefur þú notað svona hanska í í kynlífsroleplay? nei, hann er í djúpsvefni
Eitthvað að lokum? Ég er alltaf í góðu skapi, fólk les misjafnlega í andlitið mitt
Hvernig fer City - United? United vinnur 1-0
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Mánudagur, 25. október 2010
Grísmonnkís
Vegna vélarbilunar er smá frestun á brottför hjá okkur.
Hérna er hinsvegar nokkrar myndir úr seinasta túr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 21. október 2010
Gabba gabba
Púmm tjá Jæja.
Við erum skriðnir yfir 320 tonn og flökuðum 52 tonn í gær og í dag. Góð veiði á miðunum en smá bræla að láta á sér kræla.
'ur áhafnarfréttum er þetta helst:
Baldur og Heiðar töluðust ekki saman meðan á flökun stóð yfir vegna ágreinings um pökkunarstöðu. Það er vitað mál að Heiðar hafði rétt fyrir sér í því máli þrátt fyrir 5 háskólagráður hinn fyrrnefnda Baldurs. ma´lin hafa verið leyst og allir í hörku stuði.
Fresta þurfti leik Halla og Heiðars vegna ferðar í fjósið. Þar lét sjá sig í fyrsta skipti á þessu ári enginn annar en Kristinn Helgi. Þótti hann sýna snilldartakta og hefur hann sett stefnuna aftur annað kvöld.
Aggi stýrimaður er búinn að vera með Stephen King í eyrunum seinustu vaktir. Vegna gífurlegrar spennu sem lesin er upp í eyrum hans hefur hann verið mjög taugaveiklaður og gengur um með hníf mönnum til mikillar furðu.
***Uppfært****
Við lentum í smá vélarbilun og eldsvoða og erum þess vegna vélarvana útá rúmsjó sem betur fer eru þeir á Jóni Kjartans búnir að hengja taug í okkur og núna erum við á heimleið með 430 af frystri síld.
En hérna kemur ofurhetju kanónan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 15. október 2010
Bí ísí negga.
Góðan daginn lesgæsir og endur.
Jæja.
Túrinn fer af stað með miklum látum og erum við komnir yfir 100 tonna múrinn á mettíma og stefnir þetta allt saman í einn sjortara.
Okkur var að berast liðstyrkur en það er hinn síspræki Stefán ættaður frá hjarta afríku þ.e.a.s. Kongó. Hann kemur með ferskt blóð á vaktina en hann er nýsloppinn frá Jóni Kjartans SU. Þetta þykja mikil viðbrigði fyrir hann að vera núna með þeim elstu um borð en þess má geta að hann er í unglingadeildinni á Jóni.
Einnig kom það í ljós að laumufarþegi kom í ljós þegar að við vorum komnir á miðin. Svarar hann nafninu Einar og hefur Ingvar nýtt sér þetta sér til hagsbóta í lestinni og tekur hann hana núna með einari hendi.
Haraldur Harði-son og Heinkó Guðnason standa núna í miklum Fifa rimmum í borðsalnum og fer næsti leikur fram kl 04:43 stundvíslega. Takmarkað sætaframboð er í boði á þennan stórviðburð en hægt er að kaupa miða í forsölu í sjoppunni í gegnum Baldur.
Kristinn Helgi hefur startað átakinu "Sjá í tólin fyrir jólin", átakið hefst á morgun eftir kvöldmat gefið það að það sé ekkert gott í matinn eða áhugavert í sjónvarpinu. Einnig stendur til boða að fresta æfingu ef að hann vinnur ekki stóra pottinn í lottóinu.
Talandi um lottó þá er Heiðar búinn að heita því að ef hann vinnnur 6 faldan lottópott laugardagsins mun hann ráða iðnaðarmann til að klára pallinn hans Baldurs en framkvæmdir þar hafa gengið með eindæmum hægt.
Daníel the cock fór framúr sjálfum sér í dag og gengur þetta blogg brösulega eftir svaðalegan "svænhúnd" rétt.
Segamegamyndasaga er á leiðinni og ætla ég að reyna að svara eftirspurn og henda inn einhverjum myndum fljótlega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 12. október 2010
Heimleið.
Veiðin er heldur betur að glæðast og standa aflatölurnar í 450 tonnum af heilfrystri síld. "Sölvum til góðs átakið tókst með eindæmum vel og er léttleikandi andi sem svífur yfir skipinu. Með nokkrum undantekningum þó.
Núna er bara að spýta í lófana og taka restina af túrnum með trompi.
Við erum að lenda í firðinum fagra og klárum túrinn dólandi þar. Þetta er búið að ganga mjög vel hjá okkur.
Þetta er í styttra laginu hjá okkur.
Þar til næst.
Kv. Alinn.
**Hefur þú skoðun á þessu bloggi eða vilt fá að vita eitthvað sérstakt. Ef svo þá þætti okkur mjög vænt um að fá að heyra í ykkur lesendur góðir.**
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Laugardagur, 9. október 2010
Ahööm
Bim badabúm.
Ekkert jæja. Eða hvað?
Kynbótabætandi sjóflokkurinn á Aðalsteini eru mættir á miðin og sigla á eftir síld. Já það er rétt, við erum að veiða síld sem við setjum í poka og sendum á rússneska björninnn í norðri. Eins og leikar standa þá er staðan 173 -200 fyrir grömmum á móti kílóum í þessum æsispennandi kappleik sem kallast sjómennska.
Eftir 2 daga hefst ein stærsta hátíð Aðalsteins. Ekki nóg með það að það 152 ár síðan að Kúba fékk sjálfstæði frá Spánverjum heldur á Aðalsteinsaðaltappinn Sölvi Fannar afmæli þennan dag. Semsagt 10.10.10 verður blásið í lúðra og gleðin tekur öll völd. Söllarinn eins og hann er stundum kallaður er hinsvegar byrjaður að undirbúa sig líkamlega og þá aðallega andlega fyrir tilvondi pokaburð i bandaríkjunum fljótlega.
Undirritaður er skemmtanastjóri þessa merka atburð í mannkynssögunni og er ég búinn að láta prenta boli ámerkta "10.10.10 Sölvum til góðs" mun Kristinn Helgi útréttari sjá um að dreifa þeim til gesta. Miklar deilur spruttu upp þegar taka átti ákvörðun um yfirskrift bolana. Margar uppástungur skutu up kollinum. Einsog "Söltóberfest" og "Söl-Pride."
Þann 10.10.10 er fólk eindregið hvatt til að elska náungann. Þannig vil ég hvetja fólk að finna Sölvan innra með sér.
Gleðin byrjar stundvíslega kl 12:30.
Fram koma Daði og Hafsteinn með gítar dúett. Heiðar og Halli verða með töfrabrögð. Sæsi kennir svo handflökun hárkarls á eftir.
-
Þessi mikla dagsetning 10.10.10 er líka fræg fyrir annan mann. Það er hinn elskulegi Haraldur Friðbergsson en hann fagnar 39 árs afmæli sínu í dag og viljum við í áhöfninni senda honum kæra afmæliskveðju í land.
Pís Át.....
Bloggar | Breytt s.d. kl. 03:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þriðjudagur, 28. september 2010
Pressa
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Föstudagur, 10. september 2010
Hvað er í gangi?
Veiðin er eitthvað að glæðast hjá okkur og erum við núna skriðnir yfir 300 tonna múrinn og stefnir allt í mun styttri túr heldur en sá svarti (Runólfur) spáði fyrir um. Ef heldur sem horfir gætum við dottið í land snemma í næstu viku.
Nýr dagskráliður er að ryðja sér til rúms en það er óskalagahorn Heinkós á nóttunum. DJ Heinkó er búinn að vera að þeyta skífum og hrannast inn óskalögin. Tónlistarsmekkur manna er misjafn t.d. vill Þórarinn bara hlusta á reggae og vövðavinur hans Sæli hlustar bara á tónlistarmenn sem mála sig mikið eins og Kiss og Lady Gaga. kristinn Helgi er hinsvegar hrifinn af diskó smellum sem láta hann hrista skankana eins og naut í flagi.
Búið er að koma tippkeppni af stað fyrir leiki helgarinnar í ensku og leggja menn þar undir kók og prins í sjoppuni. Undirritaður ætlar sér núna að vinna upp stórslysið eftir HM í sumar. Greiningadeild Seðla Péturs setur stuðulinn 1.6 á að Pabbakútur taki pottinn.
Orðið á göngunum segir það að Lolli fái einhverskonar meltingartruflanir þegar að hringt er í hann frá Bylgjunni. Ekki er enn búið að nafngreina þennan sjúkdóm en hann lýsir sér í löngum ferðum á koppinn þegar von er á símtali.
Þór hefur ekki enn komist að því hver eftirherman er. Hann hefur samt fengið nokkrar vísbendingar og er aðeins tímaspursmál hvenær hann kemst að hinu sanna.
kv. Allinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Fimmtudagur, 9. september 2010
Gissur svaraði kallinu!
Jæja.
Það er aðeins einn maður sem er í meiri dýrlingatölu en..... Nei nei það er enginn sem er meira í hávegðum hafður hérna um borð heldur en Gissur Sigurðsson. Málið er þannig að það er oft mikil barátta um útvarpsstöðvarnar. Ein stöð er föst á rás 2 en svo stendur valið milli Bylgjunar,Fm, X'ins, Flass og allra hinna stöðvanna. Þetta hefur oft valdið miklum deilum um borð sérstaklega milli yngri og eldri áhafnarmeðlima. Eitt er hinsvegar á hreinu að þegar að Gissur er í bítinu þá hefur hann algeran forgang. Nýjasta útspil hans hefur aukið vinsældir hans til muna en hann spjallaði nýverið við Þór vélstóra um fréttir af bleiðunni. Við hlökkum til að heyra í honum aftur. Viva Gissur!
Ég sit hérna við tölvuna á rannsóknarstofunni og er að rita þessi orð þá tek ég eftir einu. Hver í fjandanum er að naga á sér neglurnar hérna eiginlega?
Nýverið var Bjartmar í viðtali á Rás 2 og talaði þá um nýjasta lagið sitt "Negril" en þar á víst að finna fallegast sólarlag í heimi. Landkönnuðurinn Tóti T er á leiðinni á þessar slóðir og ætlar að taka ghetto-blasterinn með sér setja Bjartmar á fóninn og halda í höndina á Nedínu sinni.
Trollið er eitthvað búið að vera að stríða okkur en það hefur ekki stöðvar okkur að hala niður 210 tonnum og er þetta allt saman á áætlun og virðumst við vera full sjálfbærir án þess að vera að tvíbba (tvíburatroll) með einhverjum öðrum.
Við viljum óska sjoppustjóranum og sólpallasmiðnum Baldri til hamingju með daginn. Uppáhaldsleikmaðurinn hans í ensku úrvalsdeildinni hann Marió Balotelli gaf honum góða afmælisgjöf en honum tókst að meiða sig á afmælisdegi Baldurs.
Til hamingju með daginn Baldur.
Jæja ég get ekki haft þetta lengra því að hádegisfréttir með Gissuri eru að byrja.
Þar til næst.
Kv. Allinn.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 12:12 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Miðvikudagur, 8. september 2010
Gissur ertu að lesa?
Við erum ennþá að bíða eftir því að Gissur sendu okkur kveðju úr bítinu á Bylgjunni en hún hefur ekki enn skilað sér í hús. Kiddi Melló er búinn að fórna hænsni til að biðla til æðri máttarvalda.
Hver er sinnar fæðu smiður segir einhversstaðar og eru menn búnir að slaka all verulega á buxnastrengnum eftir að pólska kyntröllið Herra Leckí stimplaði sig inn með T-bone steik og bláberjamöffins.
Ný eftirherma hefur litið dagsins ljós en honum tekst einstaklega vel að leika Þór vélstjóra erum við strax farnir að plotta hvernig við hásetarnir getum notað þennan nýja hæfikeika okkur til framdráttar. Nokkrum hugmyndum hefur verið kastað fram og sú sem datt í bestu moldina var að reyna að koma bátnum í slipp til Jamaica.
86 tonn af síld eru komin í lestina og gengur þetta eins og á útvarpi Sögu.
Leidí Gasteinn skiptir um búninga á 2 tíma fresti og er þetta farið að bitna á afköstum en til að vinna þetta upp hefur hann ákveðið að hætta að borða enda fylgir hann fyrirmyndinni í einu og öllu.
Ákveðið hefur verið að taka bíómyndina "Sex & the city 2" úr flakkara skipsins enda gerist ekkert í henni nema 4 kellingar að éta salat. Hinsvegar hefur útgáfum af nýjustu mynd Tóta "The expendables" verið fjölgað til að pungur manna komist í eðlilegt horf.
Viva Allinn!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýjustu færslur
- 3.6.2014 Olíufurstinn
- 16.7.2013 Risa búlkarar, fljótandi frystihús og allt þar á milli.
- 20.11.2012 Ingi ég veit að þetta varst þú, Davíð þú ert líka grunaður...
- 29.7.2012 M fyrir Makríl
- 29.7.2012 Orðið á göngunum
Færsluflokkar
Eldri færslur
- Júní 2014
- Júlí 2013
- Nóvember 2012
- Júlí 2012
- Júní 2012
- Apríl 2012
- Mars 2012
- Febrúar 2012
- Janúar 2012
- Nóvember 2011
- Október 2011
- September 2011
- Ágúst 2011
- Júlí 2011
- Júní 2011
- Apríl 2011
- Mars 2011
- Febrúar 2011
- Janúar 2011
- Desember 2010
- Nóvember 2010
- Október 2010
- September 2010
- Ágúst 2010
- Júlí 2010
- Júní 2010
- Maí 2010
- Apríl 2010
- Mars 2010
- Janúar 2010
- Desember 2009
- Nóvember 2009
- Október 2009
- September 2009
- Ágúst 2009
- Júlí 2009
- Júní 2009
- Maí 2009
- Apríl 2009
- Mars 2009
- Febrúar 2009
- Janúar 2009
- Desember 2008
- Nóvember 2008
- Október 2008
- September 2008
- Ágúst 2008
- Júlí 2008
- Júní 2008
- Maí 2008
- Apríl 2008
- Mars 2008
- Febrúar 2008
- Janúar 2008
- Desember 2007
- Nóvember 2007
- Október 2007
- September 2007
- Ágúst 2007
- Apríl 2007
Tenglar
Önnur Skip
Heimasíður annarra skipa í flotanum.
- Jón Kjartansson SU Faðirinn
- Hákon EA
- Margrét EA
- Christian í Grótinum
- Snorri Sturluson VE
- Málmey SK
- Kleifaberg ÓF
- Guðmundur í Nesi RE
- Börkur NK
- Jón Kjartansson SU
- Hoffell SU
- Nordborg
- Beitir NK
- Bjarni Ólafsson AK
- Álsey VE
- Guðmundur VE
- Huginn VE
- Grétar skipsjóri á jóni kjartans
- faxi
- Krossey
- Brimnes
- Nýja Guðmundar síðan
- Ásgrímur Haldórsson SF