Leita í fréttum mbl.is

Sjipp og hoj.

Jæja drengir og stúlkur þá er komið að henda inn einni færslu hérna.

Sjóraningjaveiðarnar af markríl er lokið og eru við mættir á síldarmiðinn. Síldin er ekki alveg að sýna sig í augnablikinu og erum við komnir með rétt rúm 100 tonn í frystikistuna.

       Svo virðist sem að pyngjan sé orðin aðeins þyngri eftir góða markríl vertíð og eru menn komnir í útrásargírinn. Tóti er að leggja lokahönd á innrás til Jamaica þar sem hann hyggur á köfun af ýmsu tagi.

           Tóti var ekki einn í tölvulandi frekar en útlandi og eru Halli stóri, Danni stóri og Þórhallur byrjaðir að skipuleggja ferð vestur um haf, nánartiltekið til Boston. Annar stór maður er nefnist Baldur er líka með puttana eitthvað í þessum gjörningi.

            Strákarnir eru núna sveittir í fjósinu (ræktinni) að æfa trappana. Fyrir þá sem ekki vita hvað trappar eru þá eru það hálsvövðarnir en þeir eru mest notaðir í innkaupapoka burði. Það þykir nefnilega líklegt að þessi fríði hópur vaskra manna geri lítið annað en að bera poka þvert yfir Bandaríkin :)

Það er komið celeb um borð og er það enginn annar en konungur spjallsins "fíflið og dóninn" Helgi Seljan :)  Með inkomu hans eru öll ágreiningsefni leyst við hringborðið inní setustofu. Þessu er síðan sjónvarpað með web-cam um allt skip. Fyrsta efni á dagsrá er stóra bónmálið þar sem Halli og Davíð munu grafa stríðsöxina.

Þá er komið af sveskjunni í bjúguendanum en það er hin hliðin af Kóngóbúanum geðþekka.

Sigurður Jónsson betur þekktur sem Baddi gjörðið svo vel.

 

Baddi nú er það satt að í fólki frá Djúpavogi renni Afríkst blóð um æðar þeirra hefur þú tekið eftir því að Tóti hafi verið að gefa þér hýrt auga vegna þess? Já hann er mjög áhugasamur

Hvernig lýst þér á tímabilið í Enska boltanum? Ertu sáttur við kaup Ferguson á Owen? Já hann á egftir að springa út.

Er það satt að þú hafir einu sinni veitt lax með klofinu einu saman? Nei það er ekki satt

Hvort vilduru frekar búa í dauðadalnum eða í útbænum á Eskifirði? Útbænum

Saltkjöt eða Nautalund? Saltkjöt

Eitthvað ap lokum?Nei þetta er flott.

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hahaa.....Baddi klikkar ekki á þessu, Owen á eftir að eiga sitt allra besta tímabil nú í ár, baráttu kveðjur

Ps. Kannski breytið "Krossey" linknum hjá ykkur í "Jóna Eðvalds" Bara ef þið nennið

Stjáni Hauks (IP-tala skráð) 16.7.2009 kl. 09:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband