Leita í fréttum mbl.is

1. Túr eftir sjómannadag.

Jæja. Þá höldum við af stað í fyrsta túr eftir sjómannadag þunnir, þreyttir en vel þrifalegir.

Við erum búnir að bleyta í trollinu og gott betur en það og hífðum upp 120 tonn af fallegri og stórri síld. 

Við rérum ekki feitum hesti í bókstaflegri merkingu í róðrakeppninni við áhöfnina á Jóni K. En ellilífeyrisþegarnir tóku okkur þetta árið. Okkar ósigur skrifast algerlega á einn mann og er það hann Kristinn Mellon. En hann missti árina uppúr og við misstum af sigrinum. Kristinn hefur nú þegar beðist afsökunar á þessu og er hann strax byrjaður í líkamsrækt til að koma sér í form fyrir næstu keppni.

Þetta voru hinsvegar ekki bara ósigrar þessa helgina og Stóðu Danni og Heiðar sig með prýði er sjómenn kepptu gegn sjómannadagsráði. Sjómannadagsráð áttu eiginlega aldrei möguleika. Bestu tilþrifin átti hinsvegar Jens Garðar Helgason í svokölluðum blindum fílafótbolta.

Mikil mæting var í hópsiglinguna og var nammið og gosið fljótt að klárast sem og aðrar veigar. Haraldur fribb stóð vaktina á dekkinu og sá til þess að allt færi friðsamlega fram. Mjög skemmtilegt móment var þegar að hópur ungra kvenna ætlaði sér uppá brú en þá sá Halli að góð ráð væru dýr og vippaði sér úr að ofan fyrir framan stigann og öskraði "None shall pass" líkt og Gandálfur gerði í Miðgarði.

Ballið var mjög gott en mikil biðröð myndaðist á barnum og fengu mér sér stærri glös fremur en að fara aftur. Þórhallur Hjaltason sýndi mikla danstakta á einni hækju og fann uppá nýju moonwalki á hækjum.

***Stórfrétt*** Þórarinn Trausta er orðinn afi og viljum við strákarnir hérna óska honum innilega til hamingju með nýjustu viðbótina á heimilið sem að samanstendur af 4 manneskjum 3 köttum 1 hundi og svo snáknum honum Skapta (gæti verið Skafti líka.)

Baddi, Daði, Ingi ásamt markmanninum geðþekka honum Benedikt sáust nýlega á hraðferð um hraðbrautir Evrópu og eru þeir eftirlýstir af Interpol fyrir hraðakstur í 4 löndum.

Við erum komnir með bátscelebið um borð og er víst að DV mun fylgjast vel með skrifum okkar næstu daga enda eru þeir vanir að apa einhverja vitleysu eftir okkar án þess að hafa eitthvað fyrir sér. Pressað verður á hann að gerast gestabloggari enda er alveg kominn tími að einhver annar fari að veita mér einhverja mótspyrnu enda er ég konungur hafsins á netheimum.

Höfum þetta ekki lengra að sinni við reynum að vera duglegir.

híslen Allinn 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband