Leita í fréttum mbl.is

Verslunarmannahelgarblogg

Nú er kominn tími á smá verslunarmannahelgarblogg

Okkur gengur allt í haginn eftir bras á frystitækjunum og flökunarvél fyrsta sólarhringinn.  Erum búnir að henda niður um 160 tonnum í frystilestina, setja einhver 500 tonn í grút

Lentum í því síðasta hol að rífa trollið hjá okkur og ekkert vara troll um borð.  En þessir yndislegu mannverur á Jóni Kjartanssyni buðust til að fiska ofan í okkur, þannig að ekki ætti að vanta afla. Og erum við mjög þakklátir með það.

Faðirinn hefur heldur betur verið að fiska fyrsta hol hjá honum var rétt um 1000 tonn og síðan  500 tonn í gær. Whistling

Núna í augnablikinu er verið að dæla úr pokanum hjá honum og halda fróðir menn að þetta muni vera hið ágætis hal.

Frést hefur að verð á flökunum hjá okkur sé alltaf að stíga og hefur það góð áhrif á móralinn, enda sumir heldur betur þungt haldnir að þjóðhátíðarveiki. Munum við á sunnudags kvöld halda brekkusöng fram á bakka og mun hinn eini sanni Daði Þorsteinsson sjá um hlutverk Árna Jónssen

 

 

Við vonum nú samt að landsmenn allir til sjávar og sveita skemmti sér konunglega, og muna að ganga hægt um gleðinnar dyr.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hver er sonurinn??

Elmar (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 12:23

2 identicon

Allir eru synir drottins.

Jesús (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 13:12

3 identicon

Heirst hefur að Daði skipsstjóri sé orðin það spenntur fyrir bakkasöngnum að hann sé farin að spila fyrir strákana í brúnni á Jóni Kjartans í gegnum talstöðina til að æfa sig við mikin fögnuð viðstaddra.  Kveðja af Jóni Kjartans

Sigurpáll H (IP-tala skráð) 2.8.2008 kl. 18:31

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband