Leita í fréttum mbl.is

Góðan daaaagiiiiinnnnn.

Er ekki komin tími á einhverjar fréttir,
Við Komum í land á laugardagskvöld í Bodö eftir mettúr þar sem við vorum ekki nema rétt rúma 5 sólahringa að fylla frystilestina. Áætlað aflaverðmæti er um 100 miljónir.
 
Eftir að menn höfðu snarað sér í betri gallan og skrúbbað sig þá drifu menn sig upp í bæ til að ná síðustu klukkutímunum á djamminu í Bodö.
Voru menn mjög rólegir þetta kvöld og engin illindi sköpuðust milli sparifjáreigenda Glitnis í Noregi og Okkar á allanum.
Tóku menn þessu rólega á sunnudag en skeltu sér svo snemma í bæjinn á mánudag og var stríður straumur áhafnarmeðlima í HogM í Glasshuset.  Voru miklar vangaveltur um hvaða gengisskráningu ætti að nota og varð því eithvað minna um að menn keyptu sér dýra hluti. (þrátt fyrir yfirlýsingar sumra) enda ætlast til þess á þessum síðustu og verstu að menn komi með gjaldeyri til landsins en skilji hann ekki eftir í útlandinu.
Lönduðum siðan 500 tonnum af hrati í bræðsluna á þriðjudag og fórum út kl 6. á þriðjudagskvöld 

Af áhafnarmeðlimum er allt ágætt að frétta
 
Pétur er alltaf að græða og kallar upp öðru hvoru stöðuna á genginu og heimsmarkaðsverði á gulli
Halli Stóri, Tommi og Tóti er að hefja söfnun fyrir Dollurum svo þeir hafi eitthvað á milli handanna í Utanlandserðunum í November.
Haraldur Friðbergson átti afmæli í dag og fékk Saltkjöt og Baunir í Hátiðarverð.
Danni er brjálaður yfir að hleðslutækið fyrir fartölvuna bræddi úr sér og getur hann þvi ekki horft á ....
Daði er búinn loka visakortinu hjá konunni sem er úti í london vegna stöðu gengis pundsins.
Þórhallur Freyr er búinn að missa sig yfir nýja Tiger Woods leiknum í xboxinu. 

En annars af veiðum eða frekar veiðileisi, þá erum við á leiðinni suður í fréttir og áætlaður komutími er á morgun laugardag.
Erum ekki komnir með neitt í lestar.

Áhöfnin biður fyrir batakveðjur til Hr. Heiðars sem liggur á sjúkrahúsi í Alaborg, eftir fólskulegrar líkamsárasar  sem hann og Sölvu urðu fyrir úti.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Takk kærlega fyrir þetta :) Vona að veiðar glæðist sem fyrst og óska Halla til hamingju með afmælið...

Elsa (IP-tala skráð) 10.10.2008 kl. 15:56

2 identicon

ja maður hefði betur bara átt að taka annan túr og sleppa þessu Danmerkurævintýri enda er ég enþá fastur þar. Kemst sennilega ekki heim fyrr en að kreppu líkur.

Hr. Heiðar (IP-tala skráð) 16.10.2008 kl. 19:44

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband