Leita í fréttum mbl.is

dramb er falli nćst.

Góđir hálsar núna nálgumst viđ landleiđ. Í ţessum töluđu orđum er stýrimannsvaktin ađ leggja seinustu kassana í lestina. Áćtlađur komutími í land er 02:00 í nótt.

 

Ég er ađ hugsa um ađ hafa ţetta dálítiđ óhefđbundnara í ţetta skipti. Mig langar ađ birta fyrir ykkur smásögu.

Ég tek ţađ fram ađ innihald sögunar er uppspuni frá upphafi til enda og á sér engar stođir í raunveruleikanum. Allar samlíkingar viđ raunverulega atburđi og persónur eru hreinlega tilviljun.

Sögusviđiđ er lođnubáturinn Alfređ Jóhannsson, gamall og lúinn dallur sem munađ hefur fífil sinn fegurri. Viđ erum stödd inní borđsal skipsins, ţar eru fáir á ferđ enda flestir í fastasvefni eftir átök nćturinar.

         Ţar situr hinsvegar matsveinn skipsins. Hann er rauđbirkinn og ţéttur á velli. Hann situr í hćgindastól og leggur kapal í makindum sínum og kjamsar á samloku međ bjúgu.                                            Inn gengur stýrimađur skipsins, hann er ungur mađur sólbrúnn og međ ljósar strípur í hárinu sem hann lét setja í sig á flottri klippistofu á laugaveginum.

"Hvađ ertu ađ borđa eiginlega?,, spyr ungi stýrimađurinn.

"Samloku međ bjúgu." svarar matsveinninn.

"Međ bjúgu? Veistu ekki ađ ţetta er ekkert nema fita og ógeđ, ţú ćttir nú frekar ađ fá ţér einn próteinsjeik svo Ţú verđir eins massađur og ég.,, segir stýrimađurinn á međan ađ hann blandar sér próteinsjeik í vatn.

"Ţú ert linur eins og franskbrauđ,, segir ungi mađurinn á sama tíma og hann klípur í upphandlegg matsveinsins.

Nú var ţolinmćđi matsveinsins á ţrotum. Hann stendur upp og segir: "Fyrst ađ ţú ert soddan rúgbrauđ ţá ćttuđu nú ekki ađ eiga í vandrćđum ađ taka gamla manninn í hryggspennu.,,                           Stýrimađurinn veđrađist allur upp viđ ţessa áskorun og lagđi frá sér próteinsjeikinn og líkamsrćktarprógrammiđ sem ađ hann fékk frá Magga Bess.                                                                        Ţeir setja sig í stellingar og eftir circa 5 sekúndur lá sá ungi á jörđinni og vissi ekki hvađan á sér stóđ veđriđ ţegar ađ matsveinninn segir viđ hann: "ţú ćttir kannski bara ađ fá ţér bjúgu."

---------------

Bođskapur sögunar?

Ţú fćrđ kraft úr bjúgu.

« Síđasta fćrsla | Nćsta fćrsla »

Bćta viđ athugasemd

Ekki er lengur hćgt ađ skrifa athugasemdir viđ fćrsluna, ţar sem tímamörk á athugasemdir eru liđin.

Uppsjávarskipið

Aðalsteinn Jónsson SU-11
Aðalsteinn Jónsson SU-11
Heimasíða Aðalsteins Jónssonar SU-11
Maí 2024
S M Ţ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikiđ á Javascript til ađ hefja innskráningu.

Hafđu samband